Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. nóvember 2024

Þrjú börn liggja enn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar á leikskóla fyrir viku og er eitt þeirra í öndunarvél. Mörg önnur sem sýktust þurfa mæta nær daglega á spítalann í meðferð.

Kemi Badenoch er nýr leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi. Hún tekur við af Rishi Sunak sem sagði af sér eftir ósigur flokksins í þingkosningum í sumar.

Dómsmálaráðherra segir engan siðferðislegan mun á svokölluðum fit-to-fly læknisvottorðum og almennum læknisvottorðum. Hún segist ekki skilja afstöðu lækna, sem segja slík vottorð stríða gegn siðareglum og mannréttindasáttmálanum.

Prófessor í stjórnmálafræði telur formaður Framsóknarflokksins hafi slegið nýjan tón í umræðum um útlendingamál þegar leiðtogar stjórnmálaflokka mættust í sjónvarpssal í gær. Með þessu vilji hann skilja sig frá málflutningi Miðflokks og Sjálfstæðismanna.

Allir íbúar Norður-Gaza eru í lífshættu og Ísrael þarf hætta árásum á starfsfólk hjálparsamtaka. Þetta kemur fram í ákalli yfirmanna allra helstu stofnanna Sameinuðu þjóðanna.

Frambjóðendur Demókrata og Repúblikana keppast við hvetja fólk á kjörstað á þriðjudaginn. Þau Kamala Harris og Donald Trump koma fram á samtals um tuttugu viðburðum í dag og næstu daga, nánast eingöngu í ríkjunum sjö þar sem úrslitin ráðast.

Kaldur október er baki. Á nokkrum veðurstöðvum á landinu mældist lægsti meðalvindur á öldinni.

Frumflutt

2. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir