Breska lögreglan handtók í morgun Andrew Mountbatten Windsor, bróður Karls Bretakonungs, grunaðan um misferli í opinberu starfi.
Aukið fjármagn til velferðarmála dugir ekki eitt og sér til að leysa vanda í barnaverndarkerfinu segir forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Skýra þarf frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu betur, segir félagsmálaráðherra, sem væntir þess að velferðarnefnd breyti því.
Reykjavíkurborg ætlar að fjölga íbúðum fyrir heimilislausa um hundrað. Ríkið boðar stefnu í málefnum heimilislausra.
Grimmdarverk RSF-uppreisnarhersins í borginni El Fasher í Darfúr í Súdan á seinni hluta síðasta árs bera einkenni þjóðarmorðs. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Á Seyðisfirði hafa brotajárnshaugar verið lýti við hafnarsvæðið og blasað við skipagestum. Heilbrigðiseftirlitið og Múlaþing skera upp herör gegn ruslinu sem Veðurstofan telur að gæti aukið eyðileggingu flóða og torveldað björgun.
Vetrarfrí hófst víða um land í dag og það er farið fjölga á Akureyri. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað í morgun. Starfsmenn Bláfjalla eyddu nóttinni í að færa til framleiddan snjó svo hægt verði að opna skíðasvæðið.