Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13. ágúst 2026

Tjón á nýrri vatnsleiðslu til Vestmannaeyja um helgina hleypur á milljörðum. Haldið verður áfram leggja lögnina þrátt fyrir skemmdir - bæjarstjórinn í Eyjum segir það skásta kostinn og vonar hægt verði nýta leiðsluna hluta.

Maður sem hlaut 16 ára dóm fyrir morð í Rauðagerði fyrir fimm árum gengur laus í heimalandi sínu Albaníu. Fangelsismálastjóri segir ákvörðun um reynslulausn og brottvísun byggjast á nýjum bráðabirgðalögum sem miða því minnka álag á íslenskum fangelsum.

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir langæskilegast samningsaðilar láti á það reyna láta samningana lifa út samningstímann þrátt fyrir forsendubrest. Hann segir það mikil vonbrigði verðbólgan hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári.

Umferð gekk hægt en stóráfallalaust á Vesturlandi í gærkvöld og nótt. Röðin í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli náði út fyrir flugstöðina í morgun - daginn eftir sólmyrkvann.

Hitamet gætu fallið á Englandi í dag. Þar er spáð allt 38 stiga hita. Slökkt hefur verið á eina kjarnorkuveri Rúmeníu vegna lágs vatnsborðs Dónár.

Aukakosningar verða í Clacton í Englandi í dag þegar kosið verður um þingsæti Nigels Farage, leiðtoga Umbótaflokksins. Einn mótframbjóðendana, Fötufés greifi hefur vakið mikla athygli.

Landsel við Íslandsstrendur hefur fækkað um sjötíu prósent frá 1980 og er stofninn talinn í útrýmingarhættu.

Birt

13. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,