Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. febrúar 2026

Óvissa hefur skapast í alþjóðaviðskiptum enn á eftir hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði fjölda tolla - sem Bandaríkjaforseti hafði sett á - ólöglega. Nýir tíu prósenta tollar á öll ríki heims sem forsetinn tilkynnti í gær taka gildi á þriðjudag.

Dæmi eru um fólk með ópíóðafíkn hætti í meðferð vegna hárra komugjalda. Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, vill heilbrigðisráðherra beiti sér í málinu.

Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist skilja óánægju fólks sem þarf greiða fasteignagjöld af húsum sem það býr ekki í. Undanþága Grindavíkur frá innheimtu fasteignagjalda vegna jarðhræringa verður ekki framlengd.

Góður gangur er í forvali Vinstri Grænna fyrir sæti á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Úrslit verða kynnt fyrir klukkan sex á morgun.

Mikið fjölmenni er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri. Langar biðraðir hafa myndast og lögreglan hefur verið stjórna umferð.

Noregur vann gull, silfur og brons í 50 kílómetra skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun. Johannes Klæbo vann gull og er sigursælasti skíðagöngumaður allra tíma og er Ólympíumeistari í öllum greinum skíðagöngu.

Birt

21. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,