Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. júlí 2026

Lögregla rannsakar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu. Samkomulag var gert um starfslok slökkviliðsstjóra.

Eldgosahrinu er ekki lokið á Reykjanesskaga lokið segir jarðeðlisfræðingur. Ár er frá því síðasta eldgos hófst.

Fjölmenn mótmæli voru í Úkraínu í gærkvöld vegna brotthvarfs varnarmálaráðherra landsins. Ráðherranum var skipt út í uppstokkun á ríkisstjórninni.

Samtök ungra bænda hafna einróma inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna í lok ágúst.

Sjúkrahús var rýmt í Íran í nótt vegna árása Bandaríkjamanna. Þær hafa færst til norðurs og loftvarnaflautur ómuðu í höfuðborginni Tehran.

Það gekk á ýmsu á bryggjunni á Ísafirði í morgun þegar fjögur skemmtiferðaskip skiluðu sex þúsund farþegum í land.

Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar hefur haft í nógu snúast í sumar. Í dag hefst vakt í Nýjadal á Sprengisandi.

Heimsmeistarar Argentínu og Evrópumeistarar Spánar mætast í úrslitaleik HM á sunnudag. Argentína getur orðið þriðja þjóðin til verja titilinn á HM.

Birt

16. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,