Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. apríl 2026

Formaður Sjálfstæðisflokksins telur forsætisráðherra hafi misbeitt valdi sínu þegar stefnumál Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar voru kynnt . Forsætisráðherra minnir á hún er jafnframt formaður flokksins.

Formaður Kennarasambandsins krefur stjórnvöld um framtíðarsýn í menntamálum. Þau fari fram með skyndiákvarðanir án samráðs.

Leiðtogar Ísraels og Líbanons ræða mögulega saman í síma í dag, það yrði fyrsta samtal leiðtoga ríkjanna í áratugi og framhald af viðræðum sendiherra þeirra í fyrradag.

Lokun Hormússunds er farin hafa áhrif á birgðir af þotueldsneyti í Evrópu. Forstjóri Skeljungs segir birgðastöðu á Íslandi góða en lítið megi útaf bera.

Breytingar á Loftbrú eru í skoðun hjá innviðaráðuneytinu. Hvorki á þó hætta með verkefnið draga úr fjárveitingum, sögn ráðherra.

Icelandair og Vegagerðin hafa samið um flug til Ísafjarðar næstu fjögur ár - samið var um töluvert færri ferðir en kveðið var á um í útboði.

Oddaleikir eru fram undan í úrslitakeppni í körfubolta, undanúrslit eru hafin í handbolta kvenna sem og úrslitarimma í blaki karla.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,