Formaður Sjálfstæðisflokksins telur að forsætisráðherra hafi misbeitt valdi sínu þegar stefnumál Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar voru kynnt . Forsætisráðherra minnir á að hún er jafnframt formaður flokksins.
Formaður Kennarasambandsins krefur stjórnvöld um framtíðarsýn í menntamálum. Þau fari fram með skyndiákvarðanir án samráðs.
Leiðtogar Ísraels og Líbanons ræða mögulega saman í síma í dag, það yrði fyrsta samtal leiðtoga ríkjanna í áratugi og framhald af viðræðum sendiherra þeirra í fyrradag.
Lokun Hormússunds er farin að hafa áhrif á birgðir af þotueldsneyti í Evrópu. Forstjóri Skeljungs segir birgðastöðu á Íslandi góða en lítið megi útaf bera.
Breytingar á Loftbrú eru í skoðun hjá innviðaráðuneytinu. Hvorki á þó að hætta með verkefnið né draga úr fjárveitingum, að sögn ráðherra.
Icelandair og Vegagerðin hafa samið um flug til Ísafjarðar næstu fjögur ár - samið var um töluvert færri ferðir en kveðið var á um í útboði.
Oddaleikir eru fram undan í úrslitakeppni í körfubolta, undanúrslit eru hafin í handbolta kvenna sem og úrslitarimma í blaki karla.