Bandaríkjaforseti boðar herta sókn í Íran. Forseti Írans segir að frekari árásum verði ekki beint að nágrannaríkjunum aftur nema fyrst verði ráðist á Íran þaðan. Hann baðst afsökunar á fyrri árásum. Borgaraþjónustan hefur ekki enn náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátakanna.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins. Bændasamtökin setja sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn eiga mikið erindi því aðrir vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri. Landsfundur VG er um helgina og nýr formaður verður kjörinn á morgun.
Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg í morgun og hann verður lokaður fram eftir degi. Gular veðurviðvaranir eru í gildi vegna storms, éljagangs og hríðar víða um land.
Fámenn sveitarfélög sem hýsa virkjanir eða stóriðju gætu þurft að deila fasteginasköttum með fleiri sveitarfélögum nái nýtt frumvarp fram að ganga. Markmiðið er að auka heildartekjur sveitarfélaga, mest næst virkjunum en líka að dreifa þeim víðar.
Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann skákaði sitjandi oddvita í prófkjöri flokksins.
Leikur Íslands gegn Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta er við það að hefjast. Landsliðsþjálfarinn segir liðið þurfa að þora að halda boltanum gegn sterku liði.