Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. júlí 2026

Rífa á stóran hluta stúku Laugardalslaugar. Stúkan, sem er þekkt kennileiti í höfuðborginni, er talin hættuleg. Verkfræðingar hvetja til tafarlausra aðgerða.

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var gerður afturreka með róttækar hugmyndir um stórfækka hermönnum í Evrópu, segir í Wall Street Journal. Marco Rubio, utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafi, er sagður hafa stigið á bremsuna.

Unnið er því rífa íbúðahús við Víkurbraut í Grindavík. Húsin við götuna eru nánast öll ónýt eftir jarðhræringar. Við ræðum við nýráðinn bæjarstjóra í fréttatímanum.

Vegagerðin hefur lokað hluta vegarins yfir Kjöl vegna rútu sem situr föst í eðju. Fjallvegir eru víða blautir og óvíst hvenær hægt verður opna Sprengisand.

Þrátt fyrir neikvæða umræðu um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum á bæjarstjórinn von á þúsundum gesta á Goslokahátíð um helgina.

Tónlistarkonan Taylor Swift og íþróttamaðurinn Travis Kelce eru sögð ætla ganga í það heilaga í New York í kvöld. Brúðkaup aldarinnar, segja sérfróðir.

Eftir tap fyrir Ítalíu í gærkvöld verður íslenska karlalandsliðið í körfubolta sigra Bretla ytra á sunnudag til eiga möguleika á komast á HM.

Birt

3. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,