Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. febrúar 2026

Maður var stunginn fyrir utan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur seint í gærkvöld. Árásarmaðurinn komst undan og er enn ófundinn. Sérsveit ríkislögreglustjóra tekur þátt í leitinni.

Réttindafélag fanga vill maður sem var á Bakkakoti sem barn fái ljúka hérlendis, afplánun dóms sem hann hlaut á Spáni. Ríkisstjórnin hefur lofað þeim sem voru vistaðir á Bakkakoti sálfræðiþjónustu og aðstoð.

Eitt þúsund tonnum af loðnu var landað á Eskifirði í morgun en þau fengust í tveimur köstum. Rekstrarstjóri hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Eskju segir verðmæt loðnuhrogn farin stækka og veiðin glæðast.

Flokkur forsætisráðherra Japans vann stórsigur í þingkosningum í morgun og fær því sterkara umboð til aðgerða í ríkisfjármálum. Kosningum er einnig nýlokið á Taílandi. Þar stefnir í erfiðar stjórnarmyndunarviðræður.

Neytendur ættu vera tortryggnir gagnvart upplýsingum sem safnað er um þá í smáforritum, segir tæknisérfræðingur. Fjöldi íslenskra fyrirtækja eru með smáforrit fyrir viðskiptavini sína.

Einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins Ofurskálin er í kvöld. Talsverður áhugi er hér á landi fyrir úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum og kjúklingavængir fljúga út í forsölu.

Skíðagöngukappinn Dagur Benediktsson reið á vaðið af íslensku keppendunum á Vetrarólympíuleikunum í morgun.

Birt

8. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,