Rússlandsher varpaði flugskeytum á sex hverfi Kyiv í nótt. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum drápu Rússar nær þrjú hundruð almenna borgara í Úkraínu í síðasta mánuði.
Þúsundir komu saman til mótmæla í Úkraínu í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð. Fólkið krefst þess að hætt verði við brottvikningu varnarmálaráðherrans. Zelensky segir málin til skoðunar, mótmælendur hafi náð eyrum hans.
Eldar loga enn í skógi við Drammen í Noregi, en tekist hefur að slökkva þá í byggð.
Spánn og Argentína keppa um heimsmeistaratitilinn í fótbolta klukkan sjö í kvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sitja að líkindum saman á áhorfendapöllunum, en þeir hafa eldað grátt silfur á stjórnmálasviðinu. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði segir að fótbolti sé ekki bara fótbolti, íþróttir séu alltaf pólitískar.
Íbúar á vesturhluta landsins geta gert sér vonir um að leggja regnhlífunum í lok vikunnar, þegar vindur snýr að norðan. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Á Austurlandi hefur varla komið dropi úr lofti allan júlímánuð.
Sólþyrstir ferðamenn hafa streymt á þéttsetin tjaldsvæði á suðaustur- og austurlandi um helgina, og víða hefur verið erfitt að finna pláss til að hola niður tjaldi.