Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. nóvember 2024

Ríkið verður af milljörðum ef ekki tekst afgreiða frumvarp um kílómetragjald fyrir kosningar. Fjármálaráðherra segir þingmenn tvístígandi vegna kosninganna.

Fellihýsi og gróðurhús tókust á loft í stormi á Vestfjörðum í gær. Rúður sprungu í íþróttamiðstöðinni á Þingeyri.

Fimm voru fluttir á sjúkrahús og tugir handteknir eftir ráðist var á stuðningsmenn ísraelsks fótboltaliðs í Amsterdam í gærkvöld. Þjóðarleiðtogar fordæma ofbeldið og segja það skýrt dæmi um aukna gyðingaandúð.

Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir ekki tímabært bregðast við beiðni Landhelgisgæslunnar um aukin fjárframlög á næsta ári. Gæslan vill hátt í milljarð króna.

Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Reyni Traustasyni og útgefanda Mannlífs fyrir endurbirtingu á minningargrein úr Morgunblaðinu. Sótt verði um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.

Framkvæmdastjóri HIV Íslands segir mörg dæmi um fólk hafi fengið alnæmi hér á landi vegna þess ekki var prófað fyrir HIV smiti í tíma. Svo virðist sem HIV gleymast.

Reykjavík er í viðræðum við áhugasaman kaupanda Perlunni í Öskjuhlíð. Tilboðið hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna. Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær ganga til til viðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina í Elliðaárdal.

Landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta átti vart orð til lýsa ánægju sinni með liðið eftir tapleik gegn fyrna sterku liði Slóvakíu í gær.

Frumflutt

8. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir