Rauð viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna hitabylgjunnar sem gengur yfir vesturhluta álfunnar og er í gildi í fimmtán borgum á Ítalíu, og víða á Spáni og í Frakklandi. Í Madrid er búist við fjörutíu stiga hita síðdegis.
Milljarða uppbygging gagnavers Borealis á Blönduósi býr til 150 störf á framkvæmdatíma. Borealis og Landsvirkjun kynntu nýjan samning um kaup á raforku í dag.
Vinnsla er hafin í hvalstöðinni í Hvalfirði eftir þriggja ára hlé. Skiptar skoðanir eru um ágæti og tilgang hvalveiða.
Áratugur er síðan Bretar kusu að fara úr Evrópusambandinu. Meirihluti ungra Breta telur að Brexit hafi mislukkast og vill aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.
Franskir ferðamenn, sem voru sektaðir fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina, höfðu verið gripnir við iðjuna áður og fengið tiltal landvarða en létu sér ekki segjast.
Kyrkingar í kynlífi eru orðnar algengari en áður, segja samtök gegn kynbundnu ofbeldi. Mörgu ungu fólki finnst ofbeldisfullt kynlíf sjálfsagt vegna þess að það sést í klámi.
Fresta varð leik Frakka og Íraka á heimsmeistaramótinu í fótbolta í hálfleik í gærkvöldi vegna þrumuveðurs. Eftir rúmlega tveggja klukkustunda bið var leik haldið áfram á rennblautum velli.