Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. febrúar 2026

Verðbólga í febrúar mælist 5,2 prósent og langt í verðbólgumarkmið seðlabankans náist. Vonir um frekari stýrivaxtalækkanir í vor eru litlu orðnar.

Þingkosningar verða í Danmörku 24. mars. Þetta tilkynnti Mette Frederiksen forsætisráðherra landsins á þinginu fyrir stundu.

Dómsmálaráðuneytið hefur til skoðunar kvartanir undan hegðun lögreglustjórans á Vestfjörðum á Stútungi, þorrablóti Flateyringa, fyrr í mánuðinum.

Sænska sjónvarpsstöðin TV4 segir árás óvinvætts ríkis á orkuinnviði á Norðurlöndum yfirvofandi. Neyðarstjórn Veitna var kölluð saman rétt fyrir hádegi. Yfirvöld í Svíþjóð kannast ekki við ógnina.

Biðtími barna eftir þjónustu hjá mörgum opinberum stofnunum lengist þrátt fyrir færri bíði. Umboðsmaður barna segir dæmi um þrjú ár hafi liðið frá frumgreiningu barns hjá sveitarfélagi þar til það komst á biðlista.

Viðræður Bandaríkjanna og Íran hófust á í Genf í morgun í skugga hótana Bandaríkjastjórnar um innrás. Stærsta flugmóðuskip Bandaríkjanna er lagt af stað Miðjarðarhafi.

Dæmi eru um áhrifavaldar á samfélagsmiðlum hvetji ungmenni til brjóta andlitsbein og sprauta sig með ólöglegum lyfjum til þess fram staðalímynd um útlit.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði stórt fyrir Mexíkó í vináttuleik í nótt. Aðstæður voru erfiðar en landsliðsþjálfarinn segir mikinn lærdóm hægt draga úr leikjum sem þessum.

Birt

26. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,