Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. maí 2024

Mikil örvænting hefur gripið um sig í Rafah á Gaza eftir Ísraelsher dreifði miðum í morgun þar sem íbúar voru hvattir til forða sér. Vopnahlésviðræður halda áfram þrátt fyrir yfirvofandi innrás.

Orsök flugslyssins í Þingvallavatni í febrúar 2022 þegar fjórir létust er rakin til viljandi eða óviljandi lendingar á ísilögðu vatninu mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Mannlegir þættir höfðu líklega áhrif í flugslysinu.

Vinna við nýja varnargarða við Grindavík hefst í dag. Þeir verða innan núverandi garða og er ætlað leiða þunnfljótandi hraun framhjá bænum.

Úrskurðir Landskjörstjórnar um gildi forsetaframboða eru endanlegir jafnvel þótt upp komist um fölsun undirskrifta. Halla Hrund Logadóttir mælist áfram með mest fylgi í skoðanakönnunum.

Aðgerðir stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði kosta ríkissjóð um þrettán milljarða í ár. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga sem hefur verið lagt fram á Alþingi.

Talsmaður fernra náttúruverndarsamtaka segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vanhæfan í máli Hvammsvirkjunar vegna ummæla sem hann lét falla um stefnu landeigenda gegn ríkinu. Ummælin séu ámælisverð.

Fréttamenn ítalska ríkisútvarpsins eru í sólarhrings verkfalli til mótmæla afskiptum ríkisstjórnar landsins af fréttaflutningi.

Íslandsmet í bakgarðshlaupi var slegið í hádeginu. Þrír hlauparar hafa hlaupið meira en 340 kílómetra á rúmum tveimur sólarhringum.

Frumflutt

6. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,