Von er á um tuttugu þúsund gestum á Þingvelli í dag á tónlistarhátíðina Bergmál.
Hvalveiðibátar Hvals hf. eru haldnir til veiða, í fyrsta skipti í tvö ár.
Ísraelar gera enn árásir á Líbanon þrátt fyrir samkomulag við Hezbollah um vopnahlé. Íranar segjast reiðubúnir til áframhaldandi viðræðna við Bandaríkin, takist þeim að fá Ísraela til að hætta árásum á Líbanon.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur haft í nægu að snúast um helgina. Fimm voru vistaðir í fangageymslu í nótt þar af tveir í tengslum við alvarlegar líkamsárásir.
Einn lést og áttatíu og níu slösuðust í árekstri tveggja farþegalesta á Englandi í gær.
Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra Laufásborgar er Reykvíkingur ársins. Hún fékk - venju samkvæmt - að renna fyrir fisk í Elliðaánum í morgun.
Allir viðburðir á sólstöðuhátíð á Kópaskeri sem fram fer um helgina voru færðir inn vegna veðurs.