Lögregla rannsakar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu. Samkomulag var gert um starfslok slökkviliðsstjóra.
Eldgosahrinu er ekki lokið á Reykjanesskaga lokið segir jarðeðlisfræðingur. Ár er frá því að síðasta eldgos hófst.
Fjölmenn mótmæli voru í Úkraínu í gærkvöld vegna brotthvarfs varnarmálaráðherra landsins. Ráðherranum var skipt út í uppstokkun á ríkisstjórninni.
Samtök ungra bænda hafna einróma inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna í lok ágúst.
Sjúkrahús var rýmt í Íran í nótt vegna árása Bandaríkjamanna. Þær hafa færst til norðurs og loftvarnaflautur ómuðu í höfuðborginni Tehran.
Það gekk á ýmsu á bryggjunni á Ísafirði í morgun þegar fjögur skemmtiferðaskip skiluðu sex þúsund farþegum í land.
Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar hefur haft í nógu að snúast í sumar. Í dag hefst vakt í Nýjadal á Sprengisandi.
Heimsmeistarar Argentínu og Evrópumeistarar Spánar mætast í úrslitaleik HM á sunnudag. Argentína getur orðið þriðja þjóðin til að verja titilinn á HM.
Útvarpsfréttir.