Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. október 2026

Þingmaður Flokks fólksins segir að nýtt fyrirkomulag Loftbrúar dugi ekki til að mæta háum flugfargjöldum. Hún fullyrðir að ráðherra ætli að endurskoða boðaðar breytingar.

Ísraelsher hefur umkringt borgina Hebron á Vesturbakkanum og hrakið tvö þúsund Palestínumenn frá heimilum sínum. Talið er að aðgerðirnar tengist þingkosningunum í Ísrael á þriðjudag.

Dómsmálaráðherra segist heilt yfir ánægð með jákvæð viðbrögð við áformum um sameiningar lögregluembætta. Skiptar skoðanir séu þó skiljanlegar.

Erkibiskupsdæmið í New York ætlar að greiða áttahundruð milljónir dollara í sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis af hálfu presta og annars starfsfólks.

Fulltrúi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs segir öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á þingi þess í vikunni. Brýnt sé að stilla saman strengi og ræða fulla aðild Grænlands og Færeyja að samstarfinu.

Það getur verið fjórum sinnum líklegra að neglur losni frá naglabeði hjá þeim sem nota þyngdarstjórnunarlyf en þeim sem gera það ekki.

Og Rúmlega 46 þúsund laxar veiddust í stangveiðiám landsins í sumar og jókst veiðin um 35 prósent milli ára.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,