
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu í dag. Yfirvöld í Frakklandi hafa hert öryggisráðstafanir og kallað út um sjötíu þúsund lögreglumenn og þjóðvarðarlið vegna yfirvofandi mótmæla þar.
Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú sem eiga að taka gildi um áramótin. Hann líkir þessu við blauta tusku í andlit austfirðinga.
Eftirspurn eftir insúlínsprautum hefur aukist frá því fyrr á árinu. Hægt er að nota þær til að sprauta sig með peptíðum.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af vanfjármögnun ríkisins á sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Bæjarstjórinn gagnrýnir að ávinningur við samrekstur sjúkraflutninga og slökkviliðs skili sér til ríkisins en ekki sveitarfélagsins.
Einn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa kveikt í Arnarhreiðri Adolfs Hitlers í Þýskalandi. Húsið er gjörónýtt en stjórnvöld í Bæjaralandi heita því að það verði endurbyggt.
Það ræðst í dag hvaða lið fellur með Eyjamönnum úr efstu deild karla í fótbolta. Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, berjast um síðasta örugga sætið.

Útvarpsfréttir.