Níu voru skotnir til bana og 25 særðust í tveimur skotárásum í skóla og heimahúsi í kanadískum smábæ í gær. Lögregla telur gerandann þann sama í báðum árásum.
Fangelsismálastjóri segir að skoða þurfi alvarlega hvernig símar komust inn á Litla-Hraun. Símar fundust í fimm af níu klefum, í aðgerðum lögreglu á Íslandi og Europol gegn alþjóðlegum fíkniefnahring.
Hryðjuverkamálið er fyrir Hæstarétt í dag. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathanson voru sýknaðir í héraði og Landsrétti af ákæru fyrir að skipuleggja hryðjuverk. Ríkissaksóknari taldi Hæstarétt verða að fjalla um lagatúlkun Landsréttar.
Reyðfirðingar fengu enga viðvörun áður en öflug sprenging varð í efnisnámu skammt frá bænum í gærkvöld. Hús nötruðu og fólk á útivistarsvæði skammt frá varð óttaslegið.
Búist er við að NATO auki á næstunni varanlega viðveru á norðurslóðum til að tryggja öryggi og varnir bandalagsríkja. Framkvæmdastjóri bandalagsins boðar til blaðamannafundar síðdegis.
Ísland stendur í stað á lista Transparency International sem mælir spillingu ríkja.
Bandaríska tónlistarkonan Britney Spears hefur selt réttinn að allri tónlist sinni á jafnvirði 25 milljarða króna.
Glæfralegt heljarstökk, sem var bannað í hálfa öld, hefur vakið athygli á skautasvellinu á Vetrarólympíuleikunum. Engin stig fást fyrir stökkið.
Danski knattspyrnustjórinn Thomas Frank hefur verið rekinn frá Tottenham. Liðið er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.