Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. ágúst 2026

Stjórnvöld í Marokkó segjast hafa varað Spánverja við straumi förufólks til hjálendunnar Ceuta, eftir nýlegan úrskurð hæstaréttar Spánar um málefni flóttafólks. Næstum sextíu þúsund manns flykktust yfir landamærin til Ceuta um helgina.

Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var kyrrsett vegna ófullnægjandi gagna, segir Samgöngustofa. Útlendingastofnun metur hvort skipverjum verður vísað úr landi.

Lögregla hefur lítið í höndunum við rannsókn á innbrotum í þrjú á höfuðborgarsvæðinu. Enginn liggur undir grun.

Innviðaráðuneytið vill herða lög um landshöfuðlén Íslands, punktur is. Uppi eru áform um veita lögreglu auknar heimildir til loka vefsíðum sem tengjast brotastarfsemi.

Þrír danskir drengir voru ákærðir fyrir skipuleggja árás á ungmenni í grunnskóla á Austur-Jótlandi. Yfirvöld segja þá hafa ætlað beita sprengjum.

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við einn þriggja skógarelda sem hafa geisað í Washington-ríki í Bandaríkjunum síðustu daga. 65.000 manns þurftu yfirgefa heimili sín.

Hinsegin dagar voru settir á hádegi. Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna sem nær hápunkti í Gleðigöngunni á laugardaginn

Birt

4. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,