Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. apríl 2026

Geimfarið Orion með fjórum geimförum um borð er á sporbaug um jörðu og setur stefnuna á tunglið síðar í dag. Þetta er fyrsta mannaða tunglferðin í meira en hálfa öld.

Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar.

Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til endurskoða minnisblað ráðherra um samanburð á skólakerfinu við önnur Evrópuríki. Kennsludagar séu færri en lögbundnir skóladagar.

Veðrið tekur lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. Gular viðvarnir eru í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra og Miðhálendinu.

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar hafa verið hluti af páskahefð Íslendinga um aldir og verða venju samkvæmt fluttir í heild sinni í Hallgrímskirkju á morgun. Átta lesarar skipta flutningnum á milli sín.

Birt

2. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,