Öryggi sjúklinga og starfsfólks á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi er ógnað á hverjum degi, segir starfsfólk - ekki sé hægt að tryggja þar sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjurnar, gera þyrfti ráðstafanir ef hópslys yrði.
Bresk stjórnvöld ætla að verja hálfum milljarði punda í loftvarnir í Úkraínu og fleiri ríki tilkynna um stuðning sinn í dag. Staðan í Úkraínu er aðal umræðuefnið á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel.
Sænsk flugsveit lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem sænski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér.
Átján ára kona er grunuð um að hafa skotið átta til bana í smábæ í Kanada á þriðjudag og svipt sig svo lífi. Sex börn eru á meðal þeirra látnu.
Vegagerðin telur að það gæti kostað allt að níu og hálfan milljarð að laga veginn um Fjarðarheiði þannig að hann uppfylli kröfur.
Æskilegt væri að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf, að mati lektors við Háskólann í Reykjavík. Meðal markmiða stjórnvalda er að offita barna verði ekki algengust á Íslandi af Norðurlöndunum.
Stúdentar mótmæla hækkun skrásetningargjalds við Háskóla Íslands. Gjaldið hefur verið óbreytt í 12 ár.
Jafnvirði nærri 150 milljóna króna hefur safnast fyrir fjölskyldu bandaríska leikarans James Van Der Beek sem lést úr krabbameini í gær. Hann var 48 ára og lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.
Kristrún Guðnadóttir keppir í 10 kílómetra síðagöngu á vetrarólympiuleikunum eftir hádegi. Þetta er seinni grein hennar af tveimur.