Áhöfnin á skipi Paul Watson hefur ekki orðið við kröfu Landhelgisgæslunnar um að tilkynna reglulega um staðsetningu sína. Skipið sigldi inn í íslenska lögsögu í gærkvöld.
Talið er að um sjö hundruð þúsund börn þurfi á mannúðaraðstoð að halda eftir jarðskjálftana í Venesúela. Mikil neyð er á götum höfuðborgarinnar Caracas og fjöldi fólks á ekki í nein hús að venda.
Ferjurnar Herjólfur og Baldur sigla báðar á takmörkuðu vélarafli í dag en fara þó alls tíu ferðir milli lands og Eyja. Miðaverð í Herjólf hefur hækkað.
Maður var fluttur á sjúkrahús vegna hnífstunguárásar á bar í Kópavogi í gær. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum.
Kona slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu syðst í Svíþjóð í morgun. Tæplega eitt þúsund eldingar mældust nærri Malmö á um hálftíma.
Sautján ára piltur sem hefur verð að hjóla hringinn í kringum landið til styrktar Barnaspítala Hringsins lýkur hringferðinni í dag. Ferðalagið hefur gengið vel .