Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. júní 2026

Áhöfnin á skipi Paul Watson hefur ekki orðið við kröfu Landhelgisgæslunnar um tilkynna reglulega um staðsetningu sína. Skipið sigldi inn í íslenska lögsögu í gærkvöld.

Talið er um sjö hundruð þúsund börn þurfi á mannúðaraðstoð halda eftir jarðskjálftana í Venesúela. Mikil neyð er á götum höfuðborgarinnar Caracas og fjöldi fólks á ekki í nein hús venda.

Ferjurnar Herjólfur og Baldur sigla báðar á takmörkuðu vélarafli í dag en fara þó alls tíu ferðir milli lands og Eyja. Miðaverð í Herjólf hefur hækkað.

Maður var fluttur á sjúkrahús vegna hnífstunguárásar á bar í Kópavogi í gær. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum.

Kona slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir eldingu syðst í Svíþjóð í morgun. Tæplega eitt þúsund eldingar mældust nærri Malmö á um hálftíma.

Sautján ára piltur sem hefur verð hjóla hringinn í kringum landið til styrktar Barnaspítala Hringsins lýkur hringferðinni í dag. Ferðalagið hefur gengið vel .

Birt

28. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,