Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. mars 2026

Gul veðurviðvörun vegna norðaustanhríðar féll úr gildi klukkan tólf, en gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt landið sem tekur gildi snemma á fimmtudagsmorgun.

Veðurstofan hefur enn ekki geta metið hvort hægt aflýsa hættustigi vegna snjóflóða á Seyðisfirði því lítið sést til fjalla. Þar þurftu um tíu manns yfirgefa heimili sín í gær í varúðarskyni vegna mikillar snjókomuspár sem þó virðist ekki hafa gengið eftir fullu.

Kjördagur er í Danmörku. Lars Lökke Rasmussen leiðtogi Moderaterne bauðst í gær óvænt til þess leiða ríkisstjórnarmyndun án þess verða forsætisráðherra, en stjórnmálaskýrandi segir ólíklegt af því verði.

Akureyrarbær hyggst óska eftir óviðeigandi framkoma leikskólastarfsmanns gagnvart barni á leikskólanum Tröllaborgum haustið 2024 verði tekin til rannsóknar hjá lögreglu. Málið var rannsakað á sínum tíma en látið niður falla.

Fríverslunarsamningur Evrópusambandsins og Ástralíu var handsalaður í gær, auk þess sem samkomulag um samstarf í varnar- og öryggismálum var staðfest. Fríverslunarsamningurinn er talinn geta aukið útflutning ESB-ríkja til Ástralíu um þriðjung næsta áratuginn.

Á þriðja hundrað jarðskjálfta hafa mælst á Reykjaneshrygg á síðasta sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir ekki ástæðu til telja skjálftahrinan undanfari eldgoss.

Dregið var í 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta í hádeginu.

Birt

24. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,