Gul veðurviðvörun vegna norðaustanhríðar féll úr gildi klukkan tólf, en gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt landið sem tekur gildi snemma á fimmtudagsmorgun.
Veðurstofan hefur enn ekki geta metið hvort hægt sé að aflýsa hættustigi vegna snjóflóða á Seyðisfirði því lítið sést til fjalla. Þar þurftu um tíu manns að yfirgefa heimili sín í gær í varúðarskyni vegna mikillar snjókomuspár sem þó virðist ekki hafa gengið eftir að fullu.
Kjördagur er í Danmörku. Lars Lökke Rasmussen leiðtogi Moderaterne bauðst í gær óvænt til þess að leiða ríkisstjórnarmyndun án þess að verða forsætisráðherra, en stjórnmálaskýrandi segir ólíklegt að af því verði.
Akureyrarbær hyggst óska eftir að óviðeigandi framkoma leikskólastarfsmanns gagnvart barni á leikskólanum Tröllaborgum haustið 2024 verði tekin til rannsóknar hjá lögreglu. Málið var rannsakað á sínum tíma en látið niður falla.
Fríverslunarsamningur Evrópusambandsins og Ástralíu var handsalaður í gær, auk þess sem samkomulag um samstarf í varnar- og öryggismálum var staðfest. Fríverslunarsamningurinn er talinn geta aukið útflutning ESB-ríkja til Ástralíu um þriðjung næsta áratuginn.
Á þriðja hundrað jarðskjálfta hafa mælst á Reykjaneshrygg á síðasta sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir ekki ástæðu til að telja að skjálftahrinan sé undanfari eldgoss.
Dregið var í 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta í hádeginu.