Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 28.janúar 2026

Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að Evrópa þurfi að auka varnir sínar og hafa meiri áhrif innan Atlantshafsbandalagsins. Evrópa sé ekki lengur þungamiðja í varnarstefnu Bandaríkjanna.

Íslensk erfðagreining segir fjörutíu og fimm upp í dag vegna skipulagsbreytinga. Alvotech á Íslandi sagði fimmtán upp fyrr í vikunni.

Stephen Miller einn helsti ráðgjafi Bandaríkjaforseta segir að mögulega hafi ICE brotið reglur þegar Alex Pretti var drepinn. Tveir ICE-liðar skutu Pretti um helgina.

Karlalandsliðið í handbolta getur komist í undanúrslit Evrópumótsins í dag, í fyrsta sinn í 16 ár. Til þess þarf liðið að leggja Slóveníu í leik sem byrjar klukkan hálfþrjú.

Eldur kviknaði í mannlausu iðnaðarhúsnæði á Húsavíkur í morgun. Húsið er mikið skemmt segir slökkvliðsstjóri.

Arctic Fish hyggst segja upp samningum á fjórða tug starfsmanna og breyta kjörum þeirra - fækka á yfirvinnustundum.

Aldrei hafa fleiri hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK en í fyrra. Fjölgunin var sérstaklega áberandi undir lok árs.

Fyrirtæki fá heimild til að setja upp gild siglingamerki í frumvarpi um siglingaöryggi. Þetta gæti nýst eldisfyrirtækjum sem vilja setja sjókvíar þar sem búnaður gæti skyggt á eða truflað ljósgeira frá vitum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,