Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. desember 2025

Verðbólga í desember jókst umfram spár og mælist fjögur og hálft prósent. Verð hækkaði í flestum flokkum eftir tilboðsdaga í nóvember.

Forsætisráðherra fékk vitneskju um auglýsa ætti stöðu skólameistara Borgarholtsskóla frá utanríkisráðherra.

Árásarmennirnir á Bondi-ströndinni í Ástralíu fyrir rúmri viku vörpuðu fjórum sprengjum á mannfjöldann. Engin þeirra sprakk. Fimmtán dóu í árásinni.

Mikið álag hefur verið á sjúkrahússinu á Akureyri síðustu daga og staðan þung á gjörgæslu. Blóðbankinn hvetur fólk til gefa blóð fyrir jól. Safna þarf jafn miklum birgðum og venjulega á færri dögum vegna hátíðanna.

Breskt fyrirtæki hefur birt Samherja stefnu fyrir hönd ríkisfyrirtækis í Namibíu. Fyrirtækið krefur Samherja um 14 milljarða króna.

Gistiskýli í Reykjavík verða opin lengur ef þarf yfir vetrarmánuðina sögn sviðstjóra velferðarsviðs. Húsnæðisvandi Samhjálpar verður til þess kaffistofa þeirra verður ekki opin heimilislausum í vetur.

Dönsk stjórnvöld hafa brugðist hart við skipan sérstaks erindreka Bandaríkjanna í málefnum Grænlands.

Sendiherra Bandaríkjanna hefur verið kallaður á teppið.

Mikil reiði er meðal danskra stjórnvalda eftir Bandaríkjaforseti skipaði sérstakan erindreka í málefnum Grænlands.

Frumflutt

22. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,