
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Tryggja á fjarlægð á milli félagasamtaka SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar. Fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ segir þetta staðfesta að afskipti stjórnar félagasamtakanna af faglegu starfi hafi verið óeðlileg.
Fulltrúi fastanefndar Íslands sat undir ræðu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Nefndir fjölda ríkja gengu út í mótmælaskyni við grimmdarverk Ísraela á Gaza.
Karl og kona fengu átta ára fangelsisdóma fyrir eitt mesta kókaínsmygl um Keflavíkurflugvöll í sögunni. Þau reyndu að smygla rúmlega 18 kílóum af kókaíni.
Fyrsti fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair frá því verkfalli var aflýst stendur yfir hjá ríkissáttasemjara. Nýta á næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna.
Hávær mótmæli hafa brotist út í fjölda borga á Spáni eftir að öryrki á níræðisaldri var borinn út úr íbúð sinni vegna vangoldinnar leigu.
Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir eitt helsta verkefnið að endurvekja samtal við stjórnvöld og leysa úr málum sem lengi hafa verið óafgreidd.
Skimanir fyrir ofbeldi gegn börnum hefjast í grunnskólum í október. Heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein.
Örlög Valskvenna í Bestu deildinni í fótbolta geta ráðist í kvöld. Tapi liðið fellur það úr efstu deild í fyrsta sinn í 50 ára sögu liðsins í kvennafótbolta. Í handbolta fljúga Haukar hátt um þessar mundir, en mikil dramatík var í leikjum gærkvöldsins.

Útvarpsfréttir.