Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. september 2026

Starfshópur dómsmálaráðherra vill stórfjölga jöfnunarsætum til jafna vægi atkvæða, án þess þó fjölga þingmönnum. Lagt er til þingsæti verði færð úr norðurkjördæmunum tveimur á höfuðborgarsvæðið.

Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði á Ásbrú fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga. Enn er verið leita húsnæði fyrir börn og fjölskyldur.

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lýsti í morgun áhuga á veita Kanada aukaaðild sambandinu. Forsætisráðherra landsins var sérstakur gestur við stefnuræðu hennar á Evrópuþinginu í morgun.

Rafvæðing íslenska strandveiðiflotans er komast á framleiðslustig eftir tveggja ára undirbúning. Samstarfssamningur við suður-kóreskt fyrirtæki verður undirritaður í dag og stefnt er því fyrsti rafbáturinn verði klár til veiða á næsta ári.

90 ár eru síðan franska rannsóknarskipið Porquis Pas? fórst undan Íslandsströndum. 40 menn fórust með skipinu og aðeins einn komst af.

Allir listamenn sem hitað hafa upp fyrir tónleika hins breska Eds Sheeran hafa sagt sig frá tónleikaferðalagi hans í Bandaríkjunum og hljómsveitin sem um undirleik fyrir hann líka. Ástæðan er brottrekstur eins úr þeirra hópi fyrir styðja málstað Palestínu á sviði.

Birt

16. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,