Starfshópur dómsmálaráðherra vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða, án þess þó að fjölga þingmönnum. Lagt er til að þingsæti verði færð úr norðurkjördæmunum tveimur á höfuðborgarsvæðið.
Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði á Ásbrú fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga. Enn er verið að leita að húsnæði fyrir börn og fjölskyldur.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lýsti í morgun áhuga á að veita Kanada aukaaðild að sambandinu. Forsætisráðherra landsins var sérstakur gestur við stefnuræðu hennar á Evrópuþinginu í morgun.
Rafvæðing íslenska strandveiðiflotans er að komast á framleiðslustig eftir tveggja ára undirbúning. Samstarfssamningur við suður-kóreskt fyrirtæki verður undirritaður í dag og stefnt er að því að fyrsti rafbáturinn verði klár til veiða á næsta ári.
90 ár eru síðan franska rannsóknarskipið Porquis Pas? fórst undan Íslandsströndum. 40 menn fórust með skipinu og aðeins einn komst af.
Allir listamenn sem hitað hafa upp fyrir tónleika hins breska Eds Sheeran hafa sagt sig frá tónleikaferðalagi hans í Bandaríkjunum og hljómsveitin sem sá um undirleik fyrir hann líka. Ástæðan er brottrekstur eins úr þeirra hópi fyrir að styðja málstað Palestínu á sviði.