Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. ágúst 2026

Íslendingar gista sífellt minna á hótelum og gistiheimilum innanlands. Gistinóttunum hefur fækkað um meira en fjórðung. Kostnaður er hugsanleg skýring, segir ferðamálastjóri.

Starfandi innviðaráðherra, tekur undir áhyggjur strandveiðisjómanna af óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. Hún vill fara yfir málin með sjómönnunum og finna varanlegri lausnir fyrir greinina.

Fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands sakar skólann um leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og Evrópusambandið með því meina þeim leigja hátíðarsal skólans undir fyrirlestur

Spænsk stjórnvöld hafa tekið upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu til svara sams konar aðgerðum Ítala gegn Spáni. Kveikjan deilunni er straumur flóttafólks til hólmlendunnar Ceuta.

Grænlensk stjórnvöld vara bandarískt olíufyrirtæki við því flytja tækjabúnað til bora tilraunaholur á austurströnd Grænlands. Bandaríkjaforseti hefur enn uppi yfirlýsingar um áhuga sinn á yfirráðum yfir Grænland.

Búist er við metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem hefst klukkan tvö. Við verðum í beinni frá stærsta drag bröns sem hefur verið haldinn hér á landi.

Íslandsmótið í golfi heldur áfram í dag. Fimmtán ára kylfingur lék best allra á mótinu í gær.

Birt

8. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,