Ef Ísland gengur í Evrópusambandið færist stór hluti ákvörðunarvalds í landbúnaði til sambandsins. Þetta er mat höfunda skýrslu sem Bændasamtökin létu vinna og birtu í morgun.
Rannsókn vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á leikskóla á Akranesi í vor er komin til héraðssaksóknara. Lögreglan á Vesturlandi lauk rannsókn á málinu undir lok maí.
Atvinnuvegaráðherra segir ítrekuð innbrot og skemmdarverk í eldisbú uggvænlega þróun. Draga á úr þeim viðbúnaði sem verið hefur í Mosfellsbæ frá því að þúsundum minka var hleypt þar úr búrum sínum.
Rússar gerðu árásir á úkraínskar hafnir og aðra innviði í nótt. Í það minnsta tíu voru drepnir og tugir særðust.
Íslendingi í Danmörku var synjað um skráningu á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna tuttugasta og níunda ágúst. Íslendingar sem eru búsettir erlendis eru skráðir á kjörskrá fyrsta desember, næst eftir að umsókn berst.
Fleiri stúlkur en drengir voru vistaðar á lokaðri deild Stuðla á grundvelli laga um meðferð sakamála í fyrra – ólíkt fyrri árum. Vistunardögum á deildinni hefur fjölgað mikið undanfarin ár.
Bandarísk stjórnvöld hafa endurgreitt fyrirtækjum um 100 milljarða bandaríkjadala vegna tolla sem voru innheimtir áður en Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði þá ólögmæta.
Íslandsmótið í golfi er byrjað. Leikið er á Korpúlfsstaðavelli í fyrsta sinn í þrettán ár. Aðstæður á vellinum eru krefjandi.