Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. ágúst 2026

Allri áhöfn Banderos verður vísað úr landi og fær ekki koma aftur til landsins. Fólkið er frjálst ferða sinna fram brottvísun.

Úkraínuforseti segir tafir á afhendingu loftvarnakerfa hafa leitt til meira mannfalls í árásum næturinnar en ella. Úkraínuher tókst ekki skjóta niður eitt einasta flugskeyti Rússa.

Afbrotafræðingur segir of mikla athygli á uppruna brotamanna ala á fordómum. Heitar umræður um uppruna fóru af stað eftir ungir menn voru handteknir með leikfangabyssu á Akureyri um helgina.

Hluti eldflaugar SpaceX brotlenti á tunglinu í morgun. Vísindamenn segja áreksturinn eiga eftir skilja eftir sig fjögurra metra djúpan gíg.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir þátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrstu dagana meiri en við var búist. Yfir 4.200 hafa þegar skilað inn atkvæði sínu.

Vika er í almyrkva á sólu og undirbúningur í fullum gangi, meðal annars á Vesturlandi og í Vesturbyggð. Sveitarstjórar í Snæfellsbæ og Vesturbyggð segja óþægilegt vita ekki hversu margir séu væntanlegir.

Íslandsmótið í golfi hefst á morgun og stendur til sunnudags. Lýsandi RÚV á mótinu segir fjölmarga kylfinga líklega til sigurs, bæði í karla- og kvennaflokki.

Birt

5. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,