Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. júní 2026

Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipum Hvals og ekki er vitað hvert leið þess liggur. Varðskip gæslunnar fylgir Bandero eftir vestur af landinu.

Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi olíuskort í fyrsta sinn í gær . Úkraínumenn hafa gert miklar árásir á olíuinnviði Rússlands - síðast í gær.

Yfirmaður konu sem fannst látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra tók ekki eftir neinum breytingum í fari hennar fyrir Íslandsferðina. Aðalmeðferð málsins stendur enn.

Eftir slökkt var á 2G og 3G (tvö og þrjú gé) sendum landsins eru um hundrað og tuttugu þúsund ökutæki sem geta ekki hringt sjálfvirk neyðarsímtöl. Óvíst hvort hægt uppfæra kerfi bílana og ef það er hægt hleypur kostnaður á hundruðum þúsunda.

Fjármálaráðuneytið telur netverslun með áfengi ólöglega. Niðurstöðu fyrir dómstólum er beðið.

Kanada gæti tekið þátt í Eurovision á næsta ári. Ríkisútvarp landsins hefur fengið aðild Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.

Eina fæðingardeildin á Austurlandi verður lokuð í rúmar fimm vikur í sumar. Starfandi forstjóri heilbrigðisstofnunar Austurlands lokunin nauðsinleg vegna endurbóta á húsnæði.

Liðsmenn Kanada halda áfram slá met á HM í fótbolta. Liðið varð fyrsta gestgjafaþjóðin á HM til leika utan landsteina sinna.

Birt

29. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,