Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. júní 2026

Verðbólga heldur áfram aukast. Formaður VR segir það verði breytast í sumar, svo forsendur kjarasamninganna bresti ekki í haust.

Gleðigöngunni í París hefur verið frestað vegna ofsahita. Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gefið út rauða viðvörun. vel á annað hundrað milljónir Evrópubúa verða fyrir barðinu á hitabylgjunni.

Borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja klára semja um endurgjald fyrir bensínstöðvarlóðir, hratt og vel. Borgin enn í stöðu til semja.

Neyðaróp heyrast úr húsarústum í Venesúela, þar sem fólk hefur grafist undir. Hundruð eru látnir og þúsundir slasaðir eftir jarðskjálfta sem riðu yfir landið.

Afgreiðsla fyrir áfengisnetverslun verður opnuð á Fáskrúðsfirði, þar sem Vínbúðin var áður. Slík starfsemi er á gráu svæði.

Tveir ungir menn lögðu líf sitt í hættu þegar þeir fóru án leyfis og öryggisbúnaðar yfir klettastíginn í Fálkaklettum við Esjurætur í fyrrinótt. Eigandi Fjallafélagsins segir mildi slys hafi ekki orðið og biðlar til fólks bera virðingu fyrir svæðinu og eigin öryggi.

Það dregur til tíðinda á heimsmeistaramótinu í fótbolta vestanhafs. Keppni í þremur riðlum af tólf lauk í gærkvöld og í nótt. Keppni í þremur í viðbót lýkur í kvöld.

Birt

26. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,