Andy Burnham býður sig fram til leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Keir Starmer forsætisráðherra og leiðtogi flokksins sagði af sér í morgun.
Tvær langreyðar voru skotnar í nótt.
Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn á þrítugsaldri fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í mars. Þeir óku á manninn á mikilli ferð, börðu hann og stungu. Maðurinn sem ráðist var á krefst tíu milljóna króna í miskabætur.
Lífeyrir opinberra starfsmanna var skertur verulega þegar lífeyriskerfi þeirra var gert sambærilegt því sem þekkist í einkageiranum. Prófessor og fyrrverandi ráðherra segir ríkið muna fá hundrað milljarða króna vanda í fangið þegar niðurstaða fáist um málið.
Afgerandi meirihluti Ísraela og Bandaríkjamanna telur Íran hafa sigrað í stríði ríkjanna, samkvæmt könnunum sem birtar voru um helgina.
Átta líkamárásir voru framdar á Akureyri um helgina og á þriðja hundrað umferðarlagabrot. Mesti glanninn var gripinn á næstum 140 kílómetra hraða. Bíladagar voru í bænum.
Oddviti framboðs sem var sjálfkjörið til sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps hefur verið ráðin sveitarstjóri. Hún segist frekar líta á starfið sem faglegt en pólitískt.
Bandaríska rokksveitin Queens of the Stone Age heldur tónleika á Íslandi í október. Söngvarinn er spenntur fyrir tónleikunum og sveitin ætlar að staldra við eftir tónleikana.
Víkingur náði í gærkvöldi níu stiga forskoti í Bestu deild karla í fótbolta.
Í dag getur Lionel Messi bætt í markamet sitt á HM þegar Argentína mætir Austurríki.