Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. júní 2026

Búist er við tuttugu þúsund tónleikagestum til Þingvalla á morgun. Reglur þykja strangar og rútuferðir dýrar.

Frumvarp um innviðafélag var samþykkt á Alþingi í gærkvöld. Framundan eru miklar breytingar á matvælaeftirliti með sameiningu stofnana og tilfærslu verkefna frá sveitarfélögum til ríkis.

Ekkert verður af viðræðum Bandaríkjanna og Írans í Sviss í dag, um næstu skref í viljayfirlýsingu um frið. Varaforseti Bandaríkjanna frestaði för, líbanskir fjölmiðlar segja það vegna loftárása Ísraelshers á Líbanon.

Leiðtogar Evrópusambandsríkja deila um mögulegar viðræður við Rússlandsforseta um frið í Úkraínu. Fundur þeirra stendur í Brussel.

Lögmaður mótmælanda segist ekki viss um það standist lög Hvalur hafi skráð hann sem farþega til þess geta siglt. Eitt lögbrot réttlæti ekki annað.

Andy Burnham, borgarstjóri í Manchester, vann stórsigur í aukakosningum í Bretlandi í gær. Hann er talinn líklegasti arftaki Keirs Starmers forsætisráðherra, sem heitir því berjast við hvern þann sem býður sig fram á móti honum.

Í dag eru hundrað og ellefu ár síðan konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Blómsveigur var lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðisdóttur í Hólavallagarði fyrir hádegi.

Birt

19. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,