Kveðið er á um eftirlit með förgun auðgaðs úrans, tímamörk á hafnbann, umferð um Hormússund og fullgildingu endanlegs samkomulags í viljayfirlýsingu Bandaríkjanna og Írans. Viðbrögðin eru blendin. Sérfræðingur segir horfur á olíumarkaði jákvæðar en þó þurfi að sjá hvert framhaldið verður.
Landsréttur kveður í dag upp dóm í hryðjuverkamálinu, í annað sinn.
Skorið verður niður um fjóra milljarða króna á ári í framhaldsskólum samkvæmt nýrri fjármálaáætlun. Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir stöðuna grafalvarlega.
Bandarísk stjórnvöld ætla að endurskoða veru hersins í Evrópu, þannig að ríki álfunnar taki forystu í vörnum. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna tilkynnti þetta á fundi NATO-ríkjanna í morgun.
Utanríkisráðherra Íslands segir að samstarf Íslands og Kanada í varnarmálum verði uppfært og endurskoðað.
Fimm lifandi hrossagaukar og yfir hundrað egg villtra fugla fundust í fórum erlends pars á leið úr landi með Norrænu í síðustu viku.
Landsframleiðsla á mann hefur staðið í stað á Íslandi í sjö ár. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnarins segir að bæta þurfi samkeppnishæfni Íslands til að snúa þróuninni við.
Dregið var í umspil fyrir heimsmeistaramót kvenna í fótbolta í morgun. Ísland mætir Króatíu í fyrri umferðinni og annað hvort Portúgal eða Norður-Írlandi í þeirri seinni komist liðið áfram.