Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. júní 2026

Leiðtogar G7-ríkjanna kalla eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon, mæra Bandaríkjaforseta fyrir viljayfirlýsingu um frið við Íran og eru einhuga um stuðning við Úkraínu.

Velferðarnefnd Alþingis leggur til fasteignamat í Grindavík fyrir næsta ár verði miðað við febrúar 2023. Fyrrverandi bæjarfulltrúi í Grindavík leggur til fyrrum eigendur húsa í bænum greiði fasteignagjöld gegn því búa í þeim.

Forseti Íslands talaði um mikilvægi samvinnu og samtals í hátíðarræðu á Austurvelli í morgun og vísaði í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður.

Nýr vegkafli sem opnar í Hornafirði í næstu viku styttir leiðina til Hafnar um rúma 14 kílómetra. Bæjarstjóri segir framkvæmdirnar samgöngubót en telur brýnt endurskoða gjaldskrá veggjalda.

Argentíski fótboltamaðurinn Lionel Messi jafnaði í nótt metið yfir fjölda marka skoraðra á heimsmeistaramóti. Hann skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu á Alsír.

Birt

17. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,