Leiðtogar G7-ríkjanna kalla eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon, mæra Bandaríkjaforseta fyrir viljayfirlýsingu um frið við Íran og eru einhuga um stuðning við Úkraínu.
Velferðarnefnd Alþingis leggur til að fasteignamat í Grindavík fyrir næsta ár verði miðað við febrúar 2023. Fyrrverandi bæjarfulltrúi í Grindavík leggur til að fyrrum eigendur húsa í bænum greiði fasteignagjöld gegn því að fá að búa í þeim.
Forseti Íslands talaði um mikilvægi samvinnu og samtals í hátíðarræðu á Austurvelli í morgun og vísaði í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður.
Nýr vegkafli sem opnar í Hornafirði í næstu viku styttir leiðina til Hafnar um rúma 14 kílómetra. Bæjarstjóri segir framkvæmdirnar samgöngubót en telur brýnt að endurskoða gjaldskrá veggjalda.
Argentíski fótboltamaðurinn Lionel Messi jafnaði í nótt metið yfir fjölda marka skoraðra á heimsmeistaramóti. Hann skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu á Alsír.