Þjóðin gengur að kjörborðinu í dag. Kjörfundur hófst klukkan níu í morgun og eru kjörstaðir almennt opnir til klukkan tíu.
Kjörsókn í Reykjavík er ívið meiri nú en í síðustu kosningum. Annars staðar á landinu er kjörsókn á pari við síðustu kosningar.
Nærri annar hver íbúi í Grafarvogi hyggst kjósa Sjálfstæðisflokkinn samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Fylgi flokksins minnkar því vestar sem dregur.
Ísraelsher drap sjö, hið minnsta, og særði tugi í loftárásum á Gaza í gær. Einn leiðtoga Hamas var felldur í árásunum.
Leiðtogi danska stjórnmálaflokksins Venstre hefur boðið leiðtoga Jafnaðarmanna og starfandi forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen til stjórnarmyndunarviðræðna í dag.
Leikmenn Tindastóls komu í veg fyrir hátíðarhöld í Grindavík í gærkvöldi og héldu um leið í vonina um að hampa Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta.
Búið er að aflýsa öðrum hring á Íslandsmótinu í golfi vegna veðurs.