Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir ekki forsvaranlegt að valda dýrum dauða og þjáningum í mótmælum. Tíu grísir drápust og fjölmörg dýr eru hölt og skrámuð eftir að brotist var inn í svínabú fyrirtækisins og svínum sleppt út.
Þingmenn Verkamannaflokksins sækja enn hart að leiðtoga flokksins Keir Starmer. Yfir áttatíu hafa hvatt hann til að segja af sér en hann segist ekki á förum.
Formaður stéttarfélags flugmanna sakar Icelandair um að reyna að sniðganga félagið. Icelandair boðar flugmenn til fundar á föstudag til að ræða kjaramál milliliðalaust.
Fjöldi þeirra sem grunaðir voru um að hafa atvinnu af vændi annarra tók stökk í fyrra miðað við árin á undan. Sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni telur þetta skýrast af að rannsókn slíkra mála hafi verið styrkt.
Framkvæmdastjóri Samorku, gerir ekki athugasemd við að Ísland hafi sagt sig frá orkusáttmálanum ECT. Úrsögnin dragi ekki úr getu fyrirtækja til að fjárfesta á Íslandi.
Fyrri undankeppni Eurovision er í kvöld. Ísland tekur ekki þátt en keppnin verður sýnd á RÚV.
Íbúum fjölgar í öllum kjördæmum landsins nema Norðurlandi vestra á fyrsta ársfjórðungi. Þörf er á aðgerðum til að lyfta landshlutanum upp að mati sveitarstjóra.
Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir sló þrjú Íslandsmet þegar hún hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu.