Þrír hafa verið fluttir af skemmtiferðaskipinu Hondiusi smitaðir af hantaveiru. Skipið stefnir frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja en fær ekki að leggjast þar að bryggju.
Íranar segja að hægt sé að opna Hormússund fyrir skipaumferð, utanaðkomandi ógn sé úr sögunni. Bandaríkjaforseti segir stríðinu ljúka ef Íranar fallast á nýja tillögu.
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir kjaradeilu ekki hafa leitt til þess að flugi var aflýst í gær. Icelandair sagði að ekki hefði tekist að manna áhöfnina.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis leggur til að spurningu sem lögð verður fyrir landsmenn í þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið verði breytt.
Vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn í Vaðölduver í kvöld. Flutningur þeirra næstu vikur er sá viðamesti sem ráðist hefur verið í hér.
Kjarnafæði-Norðlenska gæti verið á förum frá Svalbarðseyri, fái fyrirtækið lóð á Akureyri undir nýjar höfuðstöðvar. Sveitarstjórinn í Svalbarðsstrandarhreppi hefur áhyggjur af að störf hverfi.
Hönnun, hugmyndir og sköpun setja svip sinn á borgina á Hönnunarmars sem hefst í dag.
Koffín, pensillín og parasetamól fannst í yfirborðsvatni á þremur stöðum hér á landi í nóvember. Umhverfis og orkustofnun brýnir fyrir fólki að sturta lyfjum aldrei í niðurföll eða salerni.
Úrslitadagur er í úrvalsdeild karla í körfubolta í dag. Oddaleikir verða í báðum undanúrslitaeinvígum deildarinnar í fyrsta sinn í 19 ár.