Eldsneytisverð hefur lækkað um og yfir þrjátíu krónur eftir lækkun virðisaukaskatts sem tók gildi í dag. Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins telur að markmiðum stjórnvalda verði náð með þessari aðgerð, en gagnrýnir eftirlit með olíufélögunum.
Ríkisstjórnarmeirihlutinn er fallinn samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri græn mælast inni á þingi í fyrsta sinn í rúm tvö ár.
Hátt í 400 manns voru handteknir í Istanbúl í Tyrklandi í mótmælagöngu í tilefni baráttudags verkalýðsins. Táragasi var beitt gegn hóp sem ætlaði að komast inn á eitt af torgum borgarinnar sem hafði verið girt af.
Ákvörðun um að ferjan Baldur yrði fengin til að leysa Herjólf af var tekin með stuttum fyrirvara, segir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Stefnt er að því að hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag.
Formenn BSRB og BHM gagnrýna að hagræðingarákvarðanir stjórnvalda hafi verið teknar án samráðs við verkalýðshreyfingar
Í dag rennur út frestur fyrir Donald Trump til að fá samþykki Bandaríkjaþings fyrir stríðinu í Íran. Repúblíkanar telja sig ekki þurfa að standa við það þar sem yfirstandandi vopnahlé hafi bundið enda á stríðsátök.
Valur er kominn með undirtökin í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta og Nýliðar í sameiginlegu liði Grindavíkur/Njarðvíkur unnu sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna í fótbolta í gærkvöld.