Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1. maí 2026

Eldsneytisverð hefur lækkað um og yfir þrjátíu krónur eftir lækkun virðisaukaskatts sem tók gildi í dag. Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins telur markmiðum stjórnvalda verði náð með þessari aðgerð, en gagnrýnir eftirlit með olíufélögunum.

Ríkisstjórnarmeirihlutinn er fallinn samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri græn mælast inni á þingi í fyrsta sinn í rúm tvö ár.

Hátt í 400 manns voru handteknir í Istanbúl í Tyrklandi í mótmælagöngu í tilefni baráttudags verkalýðsins. Táragasi var beitt gegn hóp sem ætlaði komast inn á eitt af torgum borgarinnar sem hafði verið girt af.

Ákvörðun um ferjan Baldur yrði fengin til leysa Herjólf af var tekin með stuttum fyrirvara, segir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Stefnt er því hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag.

Formenn BSRB og BHM gagnrýna hagræðingarákvarðanir stjórnvalda hafi verið teknar án samráðs við verkalýðshreyfingar

Í dag rennur út frestur fyrir Donald Trump til samþykki Bandaríkjaþings fyrir stríðinu í Íran. Repúblíkanar telja sig ekki þurfa standa við það þar sem yfirstandandi vopnahlé hafi bundið enda á stríðsátök.

Valur er kominn með undirtökin í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta og Nýliðar í sameiginlegu liði Grindavíkur/Njarðvíkur unnu sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna í fótbolta í gærkvöld.

Birt

1. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,