Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 30. apríl 2026

landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi var kynnt í morgun. Áætlunin er til 2030 og inniheldur 25 tímasettar aðgerðir. Ein þeirra er þegar komin til framkvæmdar.

Formaður Landssambands smábátaeigenda segir skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys í mynni Patreksfjarðar þunga og erfiða lesningu. Ljóst margt hafi farið úrskeiðis.

Óboðlegt er eitt mikilvægasta umönnunarkerfi landsins rekið á erfiðisvinnu láglaunakvenna, segir formaður Eflingar. Niðurstöður könnunar um kjör og líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna komi ekki á óvart.

Barna- og menntamálaráðherra er svo gott sem búinn slá fyrirhugaðar svæðisskrifstofur framhaldsskóla - sem til stóð setja á laggirnar - út af borðinu.

Áttræðisafmæli Karls Gústafs Svíakonungs er fagnað í dag. Hátíðarhöldin hófust á guðþjónustu í morgun og standa fram eftir kvöldi. Fjölmargir þjóðhöfðingjar Evrópu eru viðstaddir, meðal annars Halla Tómasdóttir forseti Íslands.

Fjölmiðlafrelsi í heiminum hefur ekki verið minna í aldarfjórðung. Ísland fór um upp fimm sæti lista Blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum.

Breiðafjarðaferjan Baldur er lögð af stað suður fyrir land þar sem hún siglir á milli lands og eyja næstu daga. Við það skerðast ferjusiglingar um Breiðafjörð.

Allyson Felix, einn sigursælasti hlaupari sögunnar, stefnir á endurkomu á ólympíuleikunum í Los Angeles. Hún er fertug og hætti keppni fyrir fjórum árum.

Birt

30. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,