Ný landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi var kynnt í morgun. Áætlunin er til 2030 og inniheldur 25 tímasettar aðgerðir. Ein þeirra er þegar komin til framkvæmdar.
Formaður Landssambands smábátaeigenda segir skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys í mynni Patreksfjarðar þunga og erfiða lesningu. Ljóst sé að margt hafi farið úrskeiðis.
Óboðlegt er að eitt mikilvægasta umönnunarkerfi landsins sé rekið á erfiðisvinnu láglaunakvenna, segir formaður Eflingar. Niðurstöður könnunar um kjör og líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna komi ekki á óvart.
Barna- og menntamálaráðherra er svo gott sem búinn að slá fyrirhugaðar svæðisskrifstofur framhaldsskóla - sem til stóð að setja á laggirnar - út af borðinu.
Áttræðisafmæli Karls Gústafs Svíakonungs er fagnað í dag. Hátíðarhöldin hófust á guðþjónustu í morgun og standa fram eftir kvöldi. Fjölmargir þjóðhöfðingjar Evrópu eru viðstaddir, meðal annars Halla Tómasdóttir forseti Íslands.
Fjölmiðlafrelsi í heiminum hefur ekki verið minna í aldarfjórðung. Ísland fór um upp fimm sæti lista Blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum.
Breiðafjarðaferjan Baldur er lögð af stað suður fyrir land þar sem hún siglir á milli lands og eyja næstu daga. Við það skerðast ferjusiglingar um Breiðafjörð.
Allyson Felix, einn sigursælasti hlaupari sögunnar, stefnir á endurkomu á ólympíuleikunum í Los Angeles. Hún er fertug og hætti keppni fyrir fjórum árum.