Bandaríkjaforseti íhugar alvarlega að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu. Hann hefur ítrekað lýst yfir óánægju með að aðrar bandalagsþjóðir taki ekki þátt þátt í stríðinu gegn Íran.
Fjármálaráðherra segir vel hafa gengið að innleiða kílómetragjald. Formlegri innleiðingu lýkur í dag. Um 35 þúsund hafa skrifað undir kröfu um afnám gjaldsins.
Brýnt er að hefja heyrnarskimanir í grunnskólum sem allra fyrst, segir formaður landssamtaka heyrnarskertra. Stjórnvöld vanmeti fjölda barna með ógreinda heyrnarskerðingu.
Fyrsta mannaða tunglferðin í nær sextíu ár verður farin í kvöld. Eftir síendurteknar frestanir, segja yfirmenn NASA að allt sé til reiðu.
Átján ófærðardagar voru á Fjarðarheiði í mars. Seyðfirðingar segja ástandið hættulegt og lýjandi.
Við ræðum við veðurfræðing um útlitið næstu daga á vegum landsins.
Ítalía verður ekki með í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta í sumar. Í gær réðst hvaða 48 landslið keppa. Ítalir eru fjórfaldir heimsmeistarar en hafa ekki komist á HM frá 2014.